Forsíða PDF Print E-mail




 

Verslunin Hljómsýn er alhliða raftækjaverslun á Akranesi sem selur flest þau tæki til heimilisins sem á annað borð ganga fyrir rafmagni. Allt frá vasaljósum og nefháraklippum til þvottavéla, eldavéla og sjónvarpa af öllum stærðum.

Myndavélar eigum við fyrir lærða og leika, allt frá litlum smámyndavélum í vandaðri græjur með skiptanlegri linsu.

Við erum einnig með mikið úrval af geisladiskum og DVD myndum auk tölvuleikja fyrir Playstation og PC tölvur.

Tölvudeildin okkar er ekki sú stærsta á landinu enda er Akranes ekki stærsti bær landsins. Þar kennir þó ýmisa grasa og við eigum á lager flest allar snúrur og kapla sem þarf í þessum geira. Einnig erum við með prenthylki, prentara og fjölnotatæki, lyklaborð, mýs, tölvuhátalara, forrit, töskur, kortalesara, hreinsiefni og margt fleira.

Við erum í samstarfi við flesta umboðsaðila heimilisraftækja í höfuðborginni og þá má finna undir "samstarfsaðilar" í valmyndinni til vinstri. Þaðan er greið leið að heimasíðum þeirra.

Sendu okkur póst á "verslun hjá hljomsyn.is" ef þú vilt panta einhverja vöru sem þú sérð þar og við verðum með hana í búðinni næsta virka dag ef hún er til hjá innflytjanda.




***********************************************

************************************************



Vorum að fá sendingu af vegg og loftfestingum fyrir flatskjái og myndvarpa.

Vönduð vara á góðu verði.






Skoðaðu fleiri tilboð sem eru í gangi með því að smella á "Tilboð" í aðalvalmyndinn efst til vinstri.


 
Verslunin Hljómsýn - Stillholti 23 - 300 Akranesi - Sími: 430-2500 - Fax: 430-2501 - Kt. 430603-4180